Á sunnudeginum kíktu ég og Heiða aðeins niðureftir um fjögurleytið og sáum tvö bönd, Hellvar (Heiða og Elvar) og band sem hét Byltan. Allt í lagi stöff en Hellvar samt betra, nokkuð töff rokk með elektrónísku ívafi. Svo tókum við pásu, klæddum okkur í gellugallann og fórum til Auðar og Konna til að drekka smá böl. Héldum aftur niðureftir rúmlega átta þegar Hjálmar voru að spila. Missti alveg af þeim því ég var með 2 bjórdósir sem voru teknar af mér bööööööööööööö. Leið eins og ég væri 15 á leið á skólaball. Hélt ég væri svo sakleysisleg að ég þyrfti ekkert að sitja bjórinn í aftari hólfið. Svo sem allt í lagi að missa af reggíinu, er ekkert að missa andann yfir þessu enda reggie ekkert í uppáhaldi hér á þessum bæ, hvað þá íslenskt. Svo mar þambaði bara 1 öl fyrir utan. Það var margt skemmtilegt á dagskránni. Fyrst ber að nefna Blonde Readhead sem var langbesta sveit kvöldsins. Þau voru alveg hrikalega flott á sviðinu. Mjööööög sexy :) Fékk samt á einhverjum tímapunkti nóg af því að vera alveg fremst og færði mig upp. Sá dáldið eftir því svona eftir á. Svo komu Singapore Sling og voru alveg ok, tók ekkert voðalega mikið eftir þeim, var of bissý í bjórdrykkjunni enda mjög heitt þarna inni og lak af manni svitinn. Síðan kom danska sveitin Raevonettes á svið, var dáldið spennt að heyra í þeim enda ekki mikið heyrt frá þeim í DK. Þau voru flott á sviðinu en soundið var ekki alveg að virka og eitthvað klikkaði þegar þau tóku gamalt coverlag, my boyfriends back eða eitthvað álíka. Þá fóru þau af sviðinu í smá tíma. Verð nú að segja að þau voru hálf dauðyflisleg eitthvað á sviðinu, allavega miðað við margar aðrar sveitir kvöldsins. Síðasta band kvöldsins var síðan Trabant, hef lítið sem ekkert heyrt í þeim enda búnað vera búsett í Danmörku síðasta árið en Váááááá´!!! hvað þeir voru skemmtilegir. Þvílíkt sjóv hjá þeim, helltu freyðivíni yfir lýðinn og voru vel sveittir og sexý, Rassiprump er alltaf sætur og svo er ég dáldið heit fyrir hljómborðsleikaranum urrrg :) Ég og Auður litla tókum smá spor á gólfinu en mest allan tímann stóð ég upp á stól og dansaði, klappaði og hrópaði eins og ég lítið ætti að leysa. Var svo sveitt eftir þessa tónleika að ég svitnaði meira en eftir klst púl í gymminu. Enda rann bjórinn í gegn eins og ekkert væri, eyddi ansi miklum pening í öl. Svo héldum ég og Heiða í bæinn ásamt Auði vinkonu Heiðu (ekki Auði minni) sem beilaði þó fljótlega. Ég og Heiða stóðum heillengi í röð á svitastaðnum Sirkus en það var bara gaman. Myndast alltaf spes stemmning í röðinni fyrir framan þennan stað. Ég allavega skemmti mér konunglega :) Þetta verður seint toppað :) :) :) :) :)