Tuesday, July 12, 2005

VINNULETI!

Þetta er nú alveg ágætis vinna sem ég er í og fínt að vera innivið í þessu leiðindaveðri. EEEEnn ég er bara komin með ALGJÖRT ógeð á að vera hérna AAAAAAAAAAARRRRRRRRRGGGGG. Komin með upp í kok á sjúrnölum, aðgerðarlýsingum og göngudeildarnótum. Oj bara. Langar bara í sól og hita og sumarfrí. Ef einhverjum langar til að bjóða mér til útlanda í sólina þá endilega að gefa sig fram :)

Monday, July 11, 2005

Enn einn vinnudagurinn!!!!!!!!!!

Jæja þá er maður enn og aftur mættur í vinnuna, alltaf dáldið erfitt á mánudögum. Ekkert voðalega mikið að gera enda sumar og þá fara læknar í frí og minna að gera. Gaman af því. Er ennþá að gera upp við mig hvort ég haldi áfram í arkitektúrnum eða flytjist heim allavega tímabundið og fari e.t.v. að kenna, væri fínt ef maður gæti verið á báðum stöðum en svo gott er það ekki :) Þarf eiginlega að leggjast undir feld og hugsa málið....

Sunday, July 10, 2005

DANSIBALL!!!!!!!

Jæja þá er enn ein helgin afstaðin, að sjálfsögðu var kíkt aðeins á djammið. Stefnan var tekin á NASA á dansiball, eitthvað sem ég geri nú ekki oft, hef t.d. aldrei gerst svo fræg að fara á sveitaball en mar er nú ekki dauður enn svo aldrei að vita. Fyrst var smá upphitun hjá elskunni henni Sigurþóru þar sem við hlustuðum næstum bara á íslenska tónlist. En það var svo sem ágætt á þessu balli, mikil stemmning og svona. Svo kíktum við í bæinn og ég endaði ein á sirkus, það var stuð hitti nokkra kunnuga þar. Var að dansa við einhverja frakka þar og fór svo með einum í smá sightseeing yfir esjuna. Maður verður nú að vera duglegur í landkynningunni :)Er orðin svo mikill þjóðernissinni eftir dvölina í DK enda er Ísland best í heimi fyrir utan leiðinlegt veður og ALLT of hátt verðlag á flestu. Já já alltaf stuð á djamminu en þynnka og þreyta gerði vart við sig pa lördag svo ég tók því bara rólega og horfði á tv. Alltaf gaman af því. Veðrið hér á klakanum er nú alveg glatað, er thvílíkt fegin að vera ekki í útivinnu eins og tvö síðastliðin sumur.
Svo í dag skellti ég mér í Kringluna og keypti mér skó og leggings takk fyrir takk. Held ég verði bráðlega að fara að ná mér í mann, er farin að eyða hættulega mikið í sjálfa mig en VÁ hvað það er nú gaman ;)
Jæja skrifa ekki meir í bili

KH

Thursday, July 07, 2005

Ísland best í heimi!!!!!!!!!!!

Vááááá hvað það er langt síðan ég bloggaði seinast, hef ekki bloggað síðan ég kom frá mafíósaeyjunni. Nældi mér í óskemmtilegan húðsvepp þar sem blossaði svona upp í hitanum, kallast á íslensku litbrigðamygla, ég er semsagt mygluð:) En þetta er allt að fara sem betur fer. Fór 3x til læknis í DK út af þessu enda ókeypis að hitta lækna þar. Nú er maður loksins komin heim til Íslands í gráa og leiðinlega veðrið sem er yfirleitt hér, samt bara hressandi stundum. Fékk vinnu í sumar sem læknaritari á Borgarspítalanum en ég var að vinna þar fyrir þremur árum síðan. Barasta fínt djobb, er nú kannski ekki alltaf með allt á hreinu en þetta kemur fljótt, svo getur maður alltaf stolist á netið eða bloggað og kellurnar halda bara að mar sé að diktera :) Ég er semsagt læknaritari fyrir lýtalæknana, finnst nú eiginlega að ég ætti að fá afslátt í lýtaaðgerðir fyrst ég er að vinna fyrir þá, kannski silicon í bæði brjóstin á verði eins, 2 fyrir 1 :) Nei held ég þyrfti að vera ansi afmynduð til þess að fara í pjattskurðaðgerð, leggst ekki undir hnífinn nema nauðsyn beri til.
meira blogg síðar, er bissí í vinnunni :)