Sunday, April 23, 2006

boooored to death!!!!!



Helga litla kíkti aðeins út á lífið um helgina, áfangastaðurinn þetta kvöldið var góði gamli Swayarinn hvað annað :)Drakk gin og tónik og spísaði harðfisk með hjá Heiðunni he he....svo var sungið og nokkur dansport tekin, voða gaman :) svo bara almenn leiðindi og leti eftir það...er að spá að gera eitthvað af viti og mála eitthvað sniðugt á strigann sem ég keypti í söstrenes grene um páskana, þýðir ekkert að hangsa bara, doing nothing

Þar til síðar.....

Saturday, April 08, 2006

Er þetta ég??????

Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.

Friday, April 07, 2006

til helvítis og aftur tilbaka :(

Jæja þá er minns búin að vera veikur en er vonandi á batavegi, held ég orki ekki enn eitt kuldakastið :( byrjaði að vera slöpp á þriðjudaginn en fannst ég vera orðinn alveg hress á miðvikudaginn, fór á kaffihús með stelpunum og veðrið var svona fínt að ég var ekkert að klæða mig allt of vel. Fór svo með Ástunni í fataleiðangur og þá versnaði veðrið, kom rigning og svo haglél....var ekkert allt of hress en fer samt í leikfimi....svo í gær er ég alveg hreint að drepast, með háan hita og er að drepast úr kulda...staulaðist samt út í apótek og fötex, keypti verkjalyf og búin að bryðja þau í gríð og erg...tók 2 í morgun og vaknaði svo áðan öll rennblaut...jömmí. En nú vona ég að þetta sé búið því ég orka hreinlega ekki meir, mamma er líka að koma á sunnudaginn og þá vil ég vera hress....
c ya later