Monday, April 18, 2005

Kominn heim í heidardalinn!!!!

Jæja thá er madur komin heim frá Sikiley. Thetta var mjøg skemmtileg og áhugaverd ferd en vedrid hefdi mátt vera betra, thrír rigningadagar og thad var sko engin venjuleg rigning. En vid fengum reyndar líka thrjá góda sólardaga og audvitad tókst mér ad brenna og flagna ad íslenskum sid. Bærinn Chefalú sem vid vorum í var ædislegur, svona ekta midjardarhafsbær med flottri strønd, thrøngum gøtum og svo Rocca di Chefalú sem er fjall bæjarins og útsýnid thadan var sko ekki slæmt. Vid fórum svo í bustur og skodudum gamlar grískar rústir, hof og leikhús. Thvílíkt flott landslag og útsýni og gott vedur. Svo var farid í kaupstadarferd til høfudborgarinnar Palermo sem er mjøg sérstø, fullt af gømlum flottum byggingum en nidurnídslan mikil. Fórum í gegnum all svakaleg fátækraslum med grænmetis-og fiskimørkudum. Á Sikiley eru allir á vespum í stad hjóla og sáum vid í Palermo heila fjølskyldu á einni vespu. Vid skodum margar byggingar, medal annars Teatro Mazzimo en thar gerist lokasenan í Godfather 3, thar sem Sophia Coppola er drepin í trøppunum. Ég, Ásta og Natalía endudum svo daginn á thví ad hafa picknic í stórum gardi. Keyptum braud, ost, hráskinku, ólífur og raudvín. Allt saman fyrir skít og kanil. Thrátt fyrir ad ferdin hafi verid mjøg svo skemmtileg thá var nú gott ad komast heim. Enda var madur ansi threyttur eftir ferdalagid og nú hefur mér tekist ad ná mér í einhverja helvítis pest, er med í hálsinum og kvef.
Beiladi svo á fredagsbar um helgina og fór í stadinn í pínulítid artí fartí bíó hér í Århus. Thar var sýnd heimildarmynd um listamanninn og tónlistarmanninn Daniel Johnston. Hann byrjadi ungur ad aldri ad teikna, var mikill addáandi teiknimyndasagna, var alltaf ad búa til video og gera tónlist. Hann er svo einlægur í sínum tónlistar flutningi ad ég hef aldrei séd annad eins. Hann kann varla á gítar og syngur falskt en er svo einlægur ad stundum fer hann ad gráta í midju lagi. Thví midur á unglingsárunum byrjadi hann ad klikkast og fékk ýmsar ranghugmyndir. Sá m.a. djøfullinn í hverju horni og hélt thví fram ad hann væri draugurinn Casper. En allavega mjøg svo áhugaverd heimildarmynd. Tharf ad fylgjast betur med hvad er ad gerast í thessu bíói.
Jæja verd ad fara ad drullast til ad gera eitthvad, er haldin verkleti á háu stigi :)

Ciao bella

Monday, April 04, 2005

SIKILEY!!! HERE I COME

Jæja gott fólk, langt sídan ég hef skrifad hér. Påskarnir voru mjøg svo dejlig, mikid drukkid,mikidbordad og svo smá ritgerdarskrif. Var svo ljónheppin ad fá íslenskt lammekød med grænum orabaunum og íslenskt brennivín á påskadag, thurfti sko ekkert ad fara heim um påskana:) Á føstudaginn langa var svo matur hjá Mads hennar Heidu, hrikalega gódur karrýkjúklingaréttur, og svo haldid á tónleika med Eyvør, allgjør snilld. Svo á laugardeginum var okkur bodid í mat hjá Grím og Ínu, aldeilis huggulegt hjá theim og ædislegur matur. Tókum seinasta strætó heim og thad tók okkur um 50 mínútur, vona bara ad thau skøtuhjú fari ad fá eitthvad nær bænum. En í dag er komid ad thvi sem lengi er búid ad bída eftir, ég er semsagt á leid til Sikileyja í fyrramálid en held af stad til Køben í dag, í fylgd norsku pigerne, thad er nu dejligt. Verd semsagt í heila viku vid ad mæla upp hús og registera. Hlakka mikid til enda ku nú vera ædisleg matarmenning tharna á Sikiley og thad gerir hana Helgu litlu nú ekki leida, ad fá gódan mat í mallann sinn :)
Jæja hafid thad gott, ég ætla allavega ad hafa thad gott i Italien
Chao bellas