Thursday, March 23, 2006

Sleeping beauty!!!

Vá hef ekki sofið svona mikið síðan ég veit ekki hvenær...fór að sofa eftir despó í gær um 10 leytið og fór ekki á fætur fyrr en rétt fyrir 9 í morgun, búinn að lúlla í rúmlega 10 tíma, var bara búinn á því enda þarf ég að fara á fætur rétt fyrir 6 í vinnuna...helgin var rosa fín, sofnaði næstum í sturtu á föstudeginum eftir vinnudaginn en tókst að harka þetta af, fór svo í voða góðan mat til Ástu :)en allir voru þreyttir svo ég lagði af stað heim kl 11 um kveldið...daginn eftir voru lúxuspönnsur hjá Heiðu, með ís, rjóma, bláberjasultu, bræddu súkkulaði, ávöxtum..nammi, át 2 svona og svo 2 upprúllaðar með sykri...veisluhöld voru ekki búin því um kveldið bauð móa okkur í mat og var á boðstólum lax með pestó og gulrótarsalat með sólkjarnafræum og svo súkkulaðibananakaka í eftirrétt...nammi..þarf varla að taka það fram að ég var kílógrammi þyngri eftir helgina ;( en þessi virði...svo var kíkt í 2 partí seint og síðar meir og ókeypis áfengi í báðum :)en næstu helgi á ég mér ekki mikið líf þar sem ég verð að vinna bæði laugardag og sunnudag, sem er kannski ok þar sem ég á engan pening. Er bara eiginlega orðinn pínu leið á þessu öllu saman, á aldrei pening og er ekki alveg að meika þessa vinnu ....hlakka rosalega til að fá múttu í heimsókn, verst að geta ekki boðið henni upp á neitt betra en þetta pínulitla herbergi sem ég er í...en við eigum sko eftir að hugga okkur....

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Jæja sæta mín, finnst þér ekki gaman að mata liðið?? hihi... Fínasta helgi, en miklu eytt:( Gerum e-ð huggó í vikunni. Höldum kannski bakstur aftenið bráðlega? Held það megi reikna með auka kílói þar.... hehe

1:41 PM  
Blogger eggala said...

Miklu eytt??ég eyddi nebbla voða litlu, eyddi engu faktiskt á laugardagskvöldinu ótrúlegt en satt....mmmm já höfum bráðum bakstursaften þegar ég fæ money ef það gerist einhvern tímann :(

11:36 PM  

Post a Comment

<< Home