Wednesday, March 29, 2006

DYGTIG!!!!

Ekkert heyrt enn frá vinnunni, er farin að spá hvort ég sé bara rekin eða eitthvað, kannski hefur eitthvert gamalmennið gefið upp öndina eftir helgina :( og mér kennt um. Fór í Tiger í dag að kaupa sokka og nældi mér í einn striga í leiðinni fyrir 20 kr, nú á að fara að listamannast he he :) Skellti mér svo í ræktina og tók þessa svakalegu brennslu, dugnaður alltaf hreint hjá litla dvergnum :)fór á stigvélina eins og ég geri alltaf þar sem ég nánast missi andann á hlaupabrettinu. Það er svo sem ekki í frásögum færandi nema fyrir það að sæti einkaþjálfarinn var við hliðiná mér að puða í um 10 mín, ekki slæmt það :)held það sé eitthvað chemistry á milli okkar, er sannfærð um það :)......

Thursday, March 23, 2006

Sleeping beauty!!!

Vá hef ekki sofið svona mikið síðan ég veit ekki hvenær...fór að sofa eftir despó í gær um 10 leytið og fór ekki á fætur fyrr en rétt fyrir 9 í morgun, búinn að lúlla í rúmlega 10 tíma, var bara búinn á því enda þarf ég að fara á fætur rétt fyrir 6 í vinnuna...helgin var rosa fín, sofnaði næstum í sturtu á föstudeginum eftir vinnudaginn en tókst að harka þetta af, fór svo í voða góðan mat til Ástu :)en allir voru þreyttir svo ég lagði af stað heim kl 11 um kveldið...daginn eftir voru lúxuspönnsur hjá Heiðu, með ís, rjóma, bláberjasultu, bræddu súkkulaði, ávöxtum..nammi, át 2 svona og svo 2 upprúllaðar með sykri...veisluhöld voru ekki búin því um kveldið bauð móa okkur í mat og var á boðstólum lax með pestó og gulrótarsalat með sólkjarnafræum og svo súkkulaðibananakaka í eftirrétt...nammi..þarf varla að taka það fram að ég var kílógrammi þyngri eftir helgina ;( en þessi virði...svo var kíkt í 2 partí seint og síðar meir og ókeypis áfengi í báðum :)en næstu helgi á ég mér ekki mikið líf þar sem ég verð að vinna bæði laugardag og sunnudag, sem er kannski ok þar sem ég á engan pening. Er bara eiginlega orðinn pínu leið á þessu öllu saman, á aldrei pening og er ekki alveg að meika þessa vinnu ....hlakka rosalega til að fá múttu í heimsókn, verst að geta ekki boðið henni upp á neitt betra en þetta pínulitla herbergi sem ég er í...en við eigum sko eftir að hugga okkur....

Monday, March 13, 2006

Vúdú og önnur leiðindi...

Mér leiðist.........hef ekkert að gera fram á miðvikudag nema fara á kollegiskrifstofuna og væla út af einhverju sem ég skulda síðan ég bjó í Skejbyrassgati.En ég fer loksins að vinna á miðvikudag, þarf að vakna svona rúmlega 6 vei vei....er byrjuð að stunda vúdúgaldur út af leiðindunum, nota staurfótinn sem Heiða gaf mér hér í den sem vúdúdúkku, það stækkaði nú bara annar fóturinn á honum svo hann gagnaðist mér aldrei neitt :) spurning hver er fórnarlambið????

Saturday, March 11, 2006

Helgi í lífi gimpsins....

Jæja aldrei nennir maður að blogga!! er bara róleg i kveld enda vel tekið á því í gær...ég og Heidi fórum strax á fredagsbarinn eftir ræktina, endaði með að drekka 4 öllara..fór svo heim að spísa og sofnaði í klt tíma og vaknaði svo hálfþunn :( en að sjálfsögðu var haldið áfram..fórum á fredagsbar og svo á swayarann hvað annað..fór sem með sænsku Hildu (skemmtilega furðuleg stelpa enda Svíi og þeir eru stórfurðulegir) á Tjokkófabrikken. Fínasti plötusnúður á staðnum og var aldeilis tekin snúningur þegar hann spilaði The Knife :)hef greinilega verið aðeins of æst á dansgólfinu því ég er dáldið marinn á afturendanum og fætinum, he he já alltaf hressleiki hér á bæ...fór svo í Fötex til að kaupa mér í matinn og læstist úti. Fór til Mads og Heiðu, fékk post it hjá Heiðu til að skila eftir skilaboð á hurðinni, kem aftur tilbaka heim og uppgötva að glugginn hjá Michael bofæller er galopinn. Vippaði mér því inn um gluggann með smáhjálp frá einum nágranna :)sjálfsbjargarviðleitnin sko he he. Annars er það helst að frétta að ég byrja að vinna næsta miðvikudag á elliheimili, við að skeina gamalmennum :( hef ekki einu sinni skipt á kúkableyju á barni en það sem drepur mann ekki gerir mann bara sterkari inte sandt :)Skelli svo einni mynd hér inn af Miss Arhus í tilefni helgarinnar....enjoy!!