INNIPÚKINN
Jæja þá er verslunarmannahelgin yfirstaðin. Ég ákvað að skella mér á innipúkann um helgina enda ótrúlega mikið í boði fyrir aðeins 3900 kr. Sé ekki eftir því , þetta var skemmtilegasta djamm ársins hingað til, djöfull var gaman :) Fórum ég og Heiða á laugardagskvöldið og vorum báðar á bíl svo ekkert var drukkið það kvöldið. Fyrst sáum við og heyrðum í Cat Power sem var eitt af erlendu nöfnunum þetta kvöldið. Spilaði mjög rólega tónlist sem heyrðist varla í fyrir skvaldri. Næst kom hljómsveitin Reykjavík, hressandi pönk, mjög aktívir á sviðinu. Svo spilaði einhver trúbbi sem kallar sig Þórir, hef aldrei heyrt í honum áður og var ekki alveg að hrífast af þessu en þyrfti ef til vill að hlusta meira á hann. Svo steig á svið Jonathan Richman og var hann bara þvílíkt skemmtilegur, náði salnum alveg á sitt band. Þeir voru bara 2 á sviðinu hann og trommari en náðu samt þessari þvílíku stemmningu. Svo kom Mugison, hann var víst fullur á sviðinu, ekki tók ég þó eftir því. Margt flott hjá honum en af þessu stutta prógrammi var hann með 3 coverlög sem mér fannst ekki alveg nógu gott. Samt ágætis stemmning þegar litla flugan var tekin í lokin og allur salurinn söng með. Svo stigu Brim á svið sem er algjört stuðband, hef einu sinni verið á tónleikum með þeim þegar þeir spiluðu á árshátíð FB 1997 að ég held. Svaðalega skemmtilegt band sem spilar surftónlist, þeir voru svo skemmtilegir hér í den að ég sá ástæðu til þess að vippa mér úr skónum og fara að dansa upp á sviði. Var hins vegar edrú á laugardagskvöldið en það aftraði mér ekki frá því að stíga út á dansgólf og tvista smá. Já gleymdi alveg að á undan Brim var hljómsveitin Apparat. Hef aldrei séð þá á tónleikum og lítið hlustað á þá en þeir voru mjög þéttir og góðir. Gamli kallinn með leðurarmbandið var bara snilld. Ætla að kaupa mér disk með þeim á næstunni. Síðasta band kvöldsins var svo hin stórskemmtilega hljómsveit Nix Noltes. Kaupi mér líka disk með þeim við fyrsta tækifæri. Fór í glænýjum skóm á tónleikanna og var að drepast í löppunum, átti erfitt með að lulla upp Laugaveginn eftir tónleikana. En þetta var allt erfiðisins virði, meira um sunnudaginn síðar :)


0 Comments:
Post a Comment
<< Home