Thursday, August 18, 2005


Jæja enn einn dagurinn þar sem ég sit fyrir framan tölvuna og ekkert að gera :(
Um miðjan september verður underground tónlistarhátíð í Árósum, þriggja daga festival, með fullt af góðu stöffi fyrir þá sem fýla indiepop. Var einmitt að frétta það í gær að snilldarplötusnúðurinn Ian Watson verði með eftirpartí eftir festivalið. Plötusnúður þessi kom í apríl að spila á Chocoladefabrikken í Århus og er algjör snilli. Hann kemur frá klúbbi í London sem heitir How does it feel to be loved. Hann spilar bara indiepop, motown, soul og sixties heartbreak. Ótrúlega skemmtilegur dj sem langar obboðslega mikið að koma til Íslands, ég og Heiðan ekki alveg að standa okkur í því en það gerist einn daginn. Veit að þessi tónlistarkokteill myndi fara vel í landann :) Kominn linkur á heimasíðu dj Ians undir tónlist. Tékkið á þessu...

0 Comments:

Post a Comment

<< Home