Sunday, October 10, 2004

Ég er orðinn blogggimp!!!!

Jæja, datt í hug að það væri skemmtilegt að byrja að blogga hér í Djammmörkunni þar sem maður er svona langt frá hinu ástkæra ylhýra Íslandi. Lífið er bara nokkuð ljúft hér í Árósum og alltaf nóg að gera í nasistaskólanum, öðru nafni Aarhus arkitektskole. Ég er núna í viku vetrarfríi en verð samt á fullu í skólanum að ljúka verkefni sem á að skilast eftir vetrarfríið. Ætlaði að vera voða dugleg um helgina og vinna í skólanum en gerði svo ekki neitt. Það var að sjálfsögðu fredagsbar á föstudaginn eða elephantbar þar sem bara var seldur sterkur og vondur fílabjór. En það var samt mjög gaman hjá mér og Heiðunni enda erum við mjög pró í drykkjunni hér í Danmörku. Dönsuðum alveg heilan helling, sem maður gerir ekki mjög mikið af hér enda hafa Danir ÖMURLEGAN tónlistarsmekk! En það er oftast þolanleg tónlist á fredagsbörunum þegar þeir missa sig ekki algjörlega í hiphoppinu.
Svo í dag sunnudag fórum ég Heiða og Steini í Aros listasafnið og sáum fullt af skemmtilegri nútímalist og sýningu sem var að opna með verkum Ólafar Elíassonar. Algjör snillingur sá maður, var með tvö mjög falleg vatnsverk sem voru hrikalega flott. Einnig var þarna verk eftir einhvern Ástrala sem ég man ekki hvað heitir en verkið var risastór eftirlíking af syni listamannsins. Alveg magnað verk, þetta var svo raunverulegt, maður sá æðarnar og allar línur í húðinni og meira að segja smá skít undir nöglum. Óhuggulega raunverulegt. En ég er svo svakalega heppin að geta alltaf fengið ókeypis inn á Aros því ég er í arkitektaskólanum. Já Steini minn það getur nú borgað sig að vera arkitektahommi.
Síðan fórum við aðeins að heilsa upp á Trausta og Brynju og Sölku en Trausti átti ammæli í dag. Ëg og Steini fengum síðan lánaða eina Stephen King mynd hjá Mads hinum færeyska. Hef ekkert um hana að segja nema ALGJÖRT CRAP. Ég var ekki einu sinni hrædd við að horfa á þetta helvíti. Hún hét b.t.w. Sleepwalkers eða Sövngangerne pa dansk.
jæja klukkan orðinn margt og komin háttatími fyrir Helgu litlu. Ætla að vera dugleg á morgun í skólanum og svo ætlum við Heiða að fara í ræktina og hrista af okkur helvítis bjórspikið sem hefur safnast á mann hér. Hún Ína hans Gríms er að bjóða okkur í viku, stór plús til hennar.
Anyways kærlig hilsen til allra á frónni sem og hér í Danmörku.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home